dandyar

elskumst

09.02.2010 11:16:22 / dandyant

Frosen fingers

Ég er alltaf nánast alltaf frosin á fingrunum.  Núna er ég bara að blogga til að mér hlýni á þeim því ég er ekki í pikkvinnu í augnablikinu. Svo pikk með kaffinu er næs. 
í dag ætla ég að vera glöð í allan dag en fara svo í netta fýlu í kvöld.. djók..  :)  það er svo gaman að vera til -   brrr.. ætla ekki að hlaða byssurnar í hádeginu heldur fara heim eftir ´smá þvæling og fá mér mat og ganga frá þvotti.
Nenenenenenenene..
Sandra Björk kemur til mín á korters fresti til að þakka fyrir skíðin.  gaman að því

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.02.2010 13:47:56 / dandyant

jæja kellan komin heim

Ó hvað þetta var æðisleg helgi..  Maðurinn minn er bestur- þægilegastur og skemmtilegastur og þá sérstaklega með mér.  :)
Afrek helgarinnar var, fór í fótagreiningu og er komin með dæmi fyrir skó og hlaupin mín.  Keypit mér hlaupaskó, hlaupabuxur og einn bol.  Við fundum innréttingu í þvottahúsið á viðráðanlegu verði.  :) við fundum fermingargjöf handa Söndru og keyptum hana og erum búin að gefa henni hana - stelpan ljómaði gjörsamlega. 
við fórum út að borða á Caruso, sváfum út á hótelherbergi.  Fórum til Ella og Huldu... OG við fórum út að borða á Grillið á Sögu.
HALLÓ HALLÓ
ÞAÐ ER ÆÐIBER..
ALGERT SPARI SPARI SPARI.
VÁ SÆLL.. VIÐ KOMUM ENDURNÆRÐ HEIM EFTIR MIKIÐ KÚR OG LETI OG BÖRNNIN VORU LÍKA Í SKÝJUNUM. Enda mjög gaman að vera hjá mömmu og pabba.. alltaf stemmari þar.
Takk mútta og papsi.

» 3 hafa sagt sína skoðun

04.02.2010 08:45:27 / dandyant

Breyting

Já Herdís og Bubbi ( og þið hin ) töflurnar greinilega farnar úr blóðinu því ég nenni ekki að hlusta á þessa tvo gæja í dag.  í dag ætla ég samt að ná mér í tónlist á netinu og setja inn á mp3 spilarann minn.  Sandra Björk er með góðan hita og líður mjög illa svo eins gott að ég hugsi um hana.  :) 
Well draumar.  það sem ég stefni á að klára fyrir fertugt.  En það eru sko 8 ár eða eitthvað álíka í það.

1. Mig langar að klára Barðsneshlaupið / þó það taki mig allan daginn.
2. Mig langar að klára Laugavegshlaupið/ þó það taki mig tvo sólarrhinga.
3. Ég ætla að ferma tvær stelpur.  / það verður ekkert mál.
4. Skrifa eina sögu- skáld eða svona leyni satt sögu.
5. Mála fullt af myndum og halda eina sýningu / en þá þarf ég líka að klára bílskúrinn og slaka á í hlaupunum svo þetta er svona síðasta óskin.

Samt allt á planinu

» 5 hafa sagt sína skoðun

03.02.2010 10:05:19 / dandyant

Lúi lú

Broðer lúílúí lúí.. ó sís ónlí tokkíng túmí.
tralalalala somþíng lover.


modern talking... þeir eru góðir.  ha.

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.02.2010 09:49:04 / dandyant

Duglegir krakkar

Á hverjum degi fara börnin mín án trega á fætur.  Þau fá sér morgunmat hvert og eitt, ganga frá öllu eftir sig og síðan búa þau um rúmin sín.  Mér finnst yndislegt að vera búin að venja þau á svona fallega umgengni því núna er þetta bara liður í að fara á fætur hja þeim.  Nenenenenenene.  Ég meira að segja fékk að´lúra í morgun.  Keli vakti þau þegar hann fór í vinnuna, ég fór á fætur og sat hja´þeim í smá stund, en þau sögðu við mig. Mamma kúrð þú við erum tilbúin.  Og kysstu mig bless.  Nett yndislegur morgunn.

Já og að öðru.  það er þriðjudagur eins og þið vitið.  í dag þá hef ég ekki borðað sælgæti eða sætindi í 37 daga. Það er bara svolítill slatti af dögum.  Nokkrir eftir en ég fer kannski að slaka mér aðeins eftir 50.. Sé til hvort mig langar..

Hlakka svo til að fara suður

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.02.2010 09:36:51 / dandyant

Dandý Mikk klikk skrifar

Þessi helgi var flott.  Það gerðist ýmislegt sem ekki átti að gerast og ekki var planað.  Kellingin hljóp í 4. Vetrarhlaupinu og var búin að ákveða eftir 2 km að hún skyldi ekki leggja þetta á sig aftur.  WEll.
Ok Kallinn setti upp 2 útiljós og það er svo fallegt. 
Unglingurinn vann í hæfileikakeppni á æskulíðsmóti.
Kellingin og kallinn settu upp 1/3 af vegg í þvottahúsinu og það er svo næs.
Já það eru bara 4 dagar í rólegheitar og samt ekki ferð hjá okkur hjónum.. Þarf lítið til að gleðja glöð hjörtu.

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.01.2010 10:10:48 / dandyant

Frí nenenene

Aðra helgi ætlum við hjónakornin að fara í orlof. Við (ég) er búin að panta okkur flug og hótel á Sögu í tvær nætur með breakfast frá 5-7 febrúar.  Ég mun ekki heimsækja alla og helst ekki neinn nema Ella bróðir því það verður alveg nóg hjá okkur að stússast á föst og laug.
MMM kúr á hóteli MMM kúr með kallinum.  Mamma eða pabbi ætla að sækja krakkana eftir skóla á föstudag þar sem þau verða tilbúin heima og ready to go á STF..  þau fara á Mikkara þorrablót sem þeim á ekki eftir að leiðast því að fólkið mitt er sko skemmtilegt. 
En ég hlakka til

» 6 hafa sagt sína skoðun

26.01.2010 10:01:37 / dandyant

þriðjudagar til þrautar.

Í morgun fór ég á fætur mjög seint. Sofanði mjög seint og svaf illa. Skiptir kannski ekki máli EN.  'Eg setti bara hárband yfir hörmungarnar og fór í frekar stórum buxum því þreytt manneskja nennir ekki neinu þröngu og svo er ég í ullarsokkum.. Og þá þurfti endilega að vera fullt hús af ókunnu fólki í sínu fínasta pússi til að sjá vinnustaðinn minn.. Æði.. ég var að hugsa um að segja að ég hefði verið að koma úr næturvinnuni og fá leyfi til að fara heim og sjæna mig á no time en ákvað að loka mig inni á kontór..
tak takk

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.01.2010 08:07:59 / dandyant

Bóndadagur...

Í morgun vaknaði ég kl 05:50 til að fara og þjálfa bónda.  Það voru aðeins 4 af 15 sem mættu og fá þeir allir að skipta niður stigum fyrir hvern þann sem mætti ekki..  Sem sagt hver fer í næsta tíma með 3 blautbolsstig.  það borgar sig ekki að skrópa.
Ég gaf manninum mínum verkfærakassa í bóndadagsgjöf og hann var svona líka ánægður með hann og ætlar honum hlutverk í bílskúrnum..  Ætli það sé út af því að kassinn er bleikur. ? veit ekki

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.01.2010 08:25:53 / dandyant

prinsessan

Meðan laufin sofa liggja spaðarnir andvaka. Ligg undir sæng og tölvast . nennenne.
ætla á þorrablót á morgun.

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.01.2010 10:04:50 / dandyant

Klístur ég elska klístur

Mikið er gaman þegar ungviðinu dettur eitthvað skemmtilegt í hug eins og setja illa lokaðar pepsídósir í nýþrifna frystinn hjá mömmu sinni inn í nýmálaða þvottahúsið :)  mamma var svo glöð í morgun þegar hún var að þrífa allt kjötið, allan frystinn og ísskápinn og veggina og gólfið og hreina þvottinn sem var sem betur fer ekki stór hrúga.  Oh þessi börn nu til dags.. mér hefði aldrei dottið neitt svona heimskulegt í hug nema einu sinni þá frystum við Rósa og Stína fresca í frystinum hjá Kristey og það urðu smá læti við það..
:o)  gaman

» 4 hafa sagt sína skoðun

18.01.2010 13:28:20 / dandyant

Minn eigin texti

mig langar að semja lag og texta

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.01.2010 17:46:43 / dandyant

aðstoð takk

Já ég þigg aðstoð..  ég er svoleiðis inni í mér að ég get ekki setið kjur og haft það ógó rólegt. Það er eins og eitthvað segi, stattu upp og gerðeitthvað. En hvað á ég að gera. Ekki fer ég upp í bíl og skrepp til Helgu, KObba eða Elísabetar.  Ekki fer ég til Rósu því hún er á Höfn, ekki fer ég til Dóru því hún er á Akureyri.. Svo ég bara fer í bað..

nenenne


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.01.2010 10:43:01 / dandyant

Blússandi

Bubbi byggir á lífi er
berst á milli miður sver
selur sófa og tekur inn
Bubbi byggir besta skinn.

Sést seint á kvöldin éta
situr sæll og kann að meta
kjetið svart og brunnið
það er þá vel unnið..


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.01.2010 14:40:16 / dandyant

14. janúar

í dag á Maddý afmæli.
ég er í góðu skapi.. við erum í góðum sköpum.

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 90
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 194195
Dagsetning
10. febrúar 2010
Klukkan
Leitarbox

annað stöff